Leikur sem hefur ekki verið til áður
Þú velur upphafsár og lið — Skagamenn '92, Eyjamenn '97, Blikar 2010, hvert sem hjartað dregur þig — og þaðan er allt í þínum höndum. Deildin lifir í kringum þig: hin liðin kaupa og selja, reka og ráða, ungir leikmenn springa út og gamlar kempur kveðja. Sagan skrifast öðruvísi í hverjum einasta ferli.
The Gaffer er systurleikurinn á ensku: sama vél, sömu kröfur — enski boltinn frá 1990.
Byggður á gögnum, ekki giskum
Á bak við leikinn liggur margra mánaða gagnavinnsla. Ferill hvers leikmanns í efstu deild frá 1990 hefur verið tekinn saman — leikir, mörk, stoðsendingar, aldursferlar, félagaskipti — og styrkur hvers félags metinn tímabil fyrir tímabil. Hæfnismat leikmanna er reiknað úr þessum gögnum, og leikjavélin er stillt af með þúsundum hermdra tímabila þar til markatölur, stigatöflur og óvæntu úrslitin haga sér eins og deildin gerir í raun.
Þetta er ekki enn einn leikurinn sem var spunninn upp á einni kvöldstund — þetta er handverk með gögn að grunni.
Aðgangur
Verð með vsk. Fyrirframgreiddur aðgangur, engin sjálfvirk endurnýjun — aðgangurinn rennur einfaldlega út nema þú framlengir sjálfur.